FYRSTI REYNSLUHÓPURINN FYRIR NÝJA ÍSLENSKA UNGLINGAMYND OG FRUMSÝNING Á VERKUM UPPRENNANDI KVIKMYNDAGERÐARMANNA

26.09.2026

UngRIFF kynnir með stolti einstakan tvöfaldan viðburð þar sem unglingar og bransafólk mætast í bíósalnum. Þetta er einstakt tækifæri fyrir ungt kvikmyndaáhugafólk til að njóta glænýrra stuttmynda og skyggnast á bak við tjöldin í íslenskri kvikmyndagerð – á sama tíma og fagfólkið fær dýrmæta endurgjöf frá sínum helsta markhópi.

Ný íslensk unglingamynd

Kynning verður á nýju íslensku unglingamyndinni Bara barn í leikstjórn Völu Ómarsdóttur, framleidd af Hlín Jóhannesdóttur, en myndin er jafnframt á dagskrá „verka í vinnslu“ á Bransadögum RIFF. Myndin hefur verið í bígerð um árabil og lauk tökum síðasta vetur. Sýnt verður brot úr myndinni í anda Bransadaga fyrir fullorðna, þar sem kvikmyndagerðarkonurnar spjalla við unga áhorfendur og nýta tækifærið til að kynna verkið fyrir þeim sem sagan fjallar um.

Stuttmyndir eftir unglinga

Hinn hluti dagskrárinnar er ekki síðri, en þar verða sýnd tvö ný verk eftir upprennandi kvikmyndagerðarmenn á menntaskólaaldri. Annars vegar er það Góðu fellarnir, metnaðarfull og húmorísk endurgerð á kvikmynd Martin Scorsese frá 1990, og hins vegar Raddir sem heyrast ekki, hjartnæm heimildarmynd um það að vera ungur aðstandandi krabbameinssjúklings. Ungu kvikmyndagerðarmennirnir eru Valtýr Óskarsson, Halldór Ari, Benedikt Hilmir og Ísak Breki Gíslason. Þeir verða á svæðinu, deila sviðinu með Völu og Hlín og svara spurningum úr sal.

Unglingar skipta máli

Kvöldinu er stýrt af Ungmennaráði UngRIFF. Þetta er lifandi sýningarpallur sem sýnir að raddir ungs fólks skipta máli. Við hvetjum vini og skólafélaga til að fjölmenna, fá innblástur til eigin sköpunar og hafa bein áhrif á markaðssetningu næstu stórmyndar á Íslandi. Þetta er viðburður sem er sá fyrsti af sínu tagi á Íslandi og ætti enginn ungur kvikmyndaáhugamaður að láta þetta framhjá sér fara!

Upplýsingar