UNGRIFF
Á UngRIFF eru börn og ungmenni í aðalhlutverki sem áhorfendur og skaparar. Kvikmyndahátíðin UngRIFF fer fram á haustin en hátíðin starfar allt árið og sinnir kvikmyndafræðslu af ýmsu tagi, m.a. með námskeiðum í stuttmyndagerð á borð við Stelpur filma! og Krakkar filma! Leik- og grunnskólabörnum um land allt gefst færi á að horfa á kvikmyndir á vegum UngRIFF eina önn á hverju ári í samvinnu við skólana þar sem í boði eru alls kyns þemu á borð við umhverfis- og jafnréttismál.
Frá upphafi hefur RIFF sýnt myndir fyrir unga aldurshópa en árið 2023 var hátíðin UngRIFF stofnuð því það er verk að vinna. Markmið UngRIFF er að efla kvikmyndalæsi og sýna kvikmyndir sem annars færu ekki í sýningu hér á landi. Lögð er áhersla á samsköpun; ungmennum gefst kostur á að sitja í Ungmennaráði, koma hugmyndum sínum á framfæri og skipuleggja hátíðina í samvinnu við stjórnendur. Ungmennaráð ákveður m.a. hverjir fá heiðursverðlaun UngRIFF ár hvert en þau hafa hlotið m.a. Örn Árnason leikari, Stúdíó Sýrland og KrakkaRÚV.
Taktu þátt í UngRIFF
"Mjög skemmtilegt að fá svona skemmtilegt efni á silfurfati inn í leikskólann. Við höfðum mjög gaman af og börnin líka."
Náttúruskólinn Krakkakot
"Frábært að fá þetta flotta efni, geta valið úr það sem hentar- eða sem kennara finnst passa inn hverju sinni. Verkefnið eykur möguleika kennara til að tala um kvikmyndir sem listgrein inni í skólum og eykur á mynda- og kvikmyndalæsi nemenda."
Grunnskóli Drangsness
"Mjög fínar myndir, frábært krydd í tilveruna og skapaði góðar umræður."
Ölduselsskóli
"Algjörlega frábært viðbót! Það er mikilvægt að styrkja kennsluhætti með öllum brögðum og þessar stuttmyndir voru allar mjög góðar kveikjur fyrir umræður og umfjöllun í lífsleikni."
Hrafnagilsskóli
"Námskeiðið var mjög vel heppnað, stelpurnar voru ánægðar og örugglega mun sú fræðsla sem þær fengu vera gott veganesti út í líflð. Stelpur fllma er mjög gagnlegt fyrir stelpur sem eru í unglingdeild. Þær eru á viðkvæmum aldri þar sem margt í þjóðfélaginu hefur áhrif á þær og mótar viðhorf þeirra og sjálfsmynd þeirra. Stelpur fllma styrkir þær og eflir sjálfstraust þeirra. Auk þess var námskeiðið gagnlegt fyrir kennara."
UngRIFF snýst um samsköpun
Börn og ungmenni leiða sköpun og framleiðslu verkefna og viðburða undir handleiðslu. Með það að leiðarljósi var ungmennaráð RIFF stofnað. Markmið ungmennaráðs er að auka lýðræðislega virkni ungmenna og gefa þeim tækifæri til þátttöku og áhrifa í mótun og framleiðslu hátíðarinnar. Ráðið skipa 5 unglingar á aldrinum 12-16 ára um allt land sem hittist einu sinni í mánuði, oftar ef þörf krefur, til að skipuleggja og undirbúa hátíðina ásamt verkefnastjóra hátíðarinnar.






