Vilt þú taka þátt í að skapa næstu UngRIFF hátíð?
UngRIFF byggir á samsköpun. Það þýðir að barna- og ungmennakvikmyndahátíðin UngRIFF hátíðin er ekki einungis búin til fyrir krakka, heldur taka krakkar þátt í sköpun og skipulagningu hennar. Börn og ungmenni leiða sköpun og framleiðslu verkefna og viðburða undir handleiðslu verkefnastjóra UngRIFF. Með það að leiðarljósi var ungmennaráðið stofnað. Markmið ungmennaráðs er að auka lýðræðislega virkni ungmenna og gefa þeim tækifæri til þátttöku og áhrifa í mótun og framleiðslu hátíðarinnar.
Hvað felst í því að vera með í ungmennaráði?
- Mánaðarlegir fundir með verkefnastjóra UngRIFF (hægt að vera með á netinu)
- Þátttaka í skipulagningu næstu UngRIFF hátíðarinnar, sem fer fram 23. september til 4. október 2026
- Hugmyndavinna varðandi dagskrá hátíðarinnar, m.a. hvaða smiðjur og viðburðir verða í boði
- Val á handhafa Heiðursverðlauna UngRIFF 2026!
- Þátttaka á Opnunarhátíð UngRIFF í Smárabíói (fyrir þá sem vilja)
Ráðið er skipað unglingum á aldrinum 12-16 ára um allt land sem hittast einu sinni í mánuði, oftar ef þörf krefur, til að skipuleggja og undirbúa UngRIFF ásamt verkefnastjóra hátíðarinnar. Fundir fara bæði fram í persónu á skrifstofu og rafrænt, til að gera þeim sem búa utan höfuðborgarsvæðisins kleift að taka þátt.
