HUGMYNDASMIÐJA: BÚÐU TIL BÍÓMYND

26.09.2026

Búðu til þína eigin bíómynd! Skapandi ritsmiðja fyrir krakka í Norræna húsinu.
UngRIFF býður krökkum á aldrinum 8-12 ára í spennandi og lifandi ritsmiðju þar sem sköpunargáfan fær að njóta sín. Í stað þess að skrifa hefðbundna sögu munu krakkarnir vinna saman að því að skapa hugmynd að bíómynd!

Beislaðu sköpunargáfuna með barnabókahöfundi

Gunnar Theodór Eggertsson leiðir smiðjuna – margverðlaunaður barnabókahöfundur og kvikmyndafræðingur sem skrifaði meðal annars bækurnar Drauma-Dísa og Steindýrin.

Leiðbeinandinn mun leiða hópinn áfram skref fyrir skref til og búa til söguhetju, andstæðing og aðstæður, þangað til eftir stendur heild hugmynd að kvikmyndahandriti – tilbúin til kynningar fyrir framan hvaða framleiðanda sem er. Vitaskuld mun ekki takast að skrifa handritið sjálft á svona stuttum tíma, en þátttakendur fara heim með ný verkfæri í töskunni til að nýta sér um ókomna tíð.

Til að fagna afrakstrinum fær hópurinn hannað sérsmíðað kvikmyndaplakat byggt á sögunni þeirra, sem minjagrip og sönnunargagn um þátttöku í ritsmiðjunni.
Smiðjan tekur mið af hugmyndaflugi barnanna og hvetur þau til frekari sagna- og kvikmyndagerðar. Öll börn á aldursbilinu 8-12 ára eru velkomin, en plássið er takmarkað og því mælum við með að tryggja sér þátttöku strax.

Allir í bíó

Áður en smiðjan hefst sýnir UngRIFF norsku kvikmyndina Small Dogs Bark Loud, hugljúfa mynd um hina 12 ára Tuni og málglaða hundinn hennar Salto.Athugið að ef ekki tekst að tryggja sér pláss í smiðjuna er samt sem áður velkomið að mæta á sýninguna. Allar sýningar og smiðjur á vegum UngRIFF í Norræna húsinu eru börnum og foreldrum að kostnaðarlausu.

DAGSKRÁ

13:00 – 14:10 – Small Dogs Bark Loud14:30 – 15:30 – Hugmyndasmiðja

Vinsamlegast fyllið út þetta skráningarblað til að taka þátt