Paddington náttfatabíó

27.09.2026

UngRIFF sýnir Paddington með íslensku tali á einstakri bíóupplifun fyrir alla fjölskylduna.  Upplifðu ævintýrið um bangsan Paddington í huggulegustu bíóferð allra tíma – mættu í náttfötunum með þinn uppáhalds bangsa og láttu fara vel um þig – við sjáum um rest!

Eftirminnileg upplifun fyrir alla fjölskylduna

Sýningin fer fram í Háskólabíó þar sem stórum bíósal verður breytt í eitt risastórt náttfatapartý með skreytingum, teppavirkjum og glás af púðum, pullum og mjúkum sessum. Kynnir kvöldsins er enginn annar en leikarinn Siggi Þór sem talar fyrir Paddington á íslensku. Heitt kakó verður á boðstólnum í boði Kaffitár og allir bíógestir fá bangsaköku frá sælkeraversluninni Sætar syndir.

Ævintýrið sem allir muna eftir

Djúpt í iðrum Perú uppgötvar breskur landkönnuður nýja bangsategund sem getur talað mannamál og elskar marmelaði. Mörgum árum síðar mætir lítill bangsahvolpur til Lundúna á Paddington lestarstöðinni þar sem Brown fjölskyldan tekur hann að sér – upphefst þá einstakt ævintýri þar sem reynir á kænsku og góðsemi bangsans og nýju vina hans.

Myndin kom fyrst í bíóhús á Íslandi árið 2014 og fékk strax einmæla lof gagnrýnenda fyrir að henta áhorfendum á öllum aldri.

Ekki missa af þessari einstöku skemmtun fyrir alla fjölskylduna – og einstöku tækifæri til að fara í náttfötin um miðjan dag!