EF NÁTTÚRAN GÆTI TALAÐ

27.09.2026

15:00 - 17:00

Ef náttúran gæti talað, hvaða sögu myndi hún segja okkur? UngRIFF býður börnum á aldrinum 2-7 ára að horfa á nýja íslenska heimildarmynd og taka í framhaldinu þátt í Náttúrusmiðju á vegum framleiðenda myndarinnar í nágrenni Norræna hússins.

Heimildamynd sögð frá sjónarhorni 5 ára barns

Ísey: Náttúrubarn er ný íslensk heimildamynd í leikstjórn Lindu Ásgeirsdóttur. Ísey er fimm ára gömul stelpa sem elst upp á Íslandi ásamt yngri bróður sínum, Frans. Með íslenska móður og eistneskan föður fótar hún sig í lífinu á tveimur tungumálum og tveimur ólíkum menningarheimum; hún fléttar þeim saman við töfrandi augnablik, sjálfstæða uppgötvun og samveru með fjölskyldu, vinum og náttúrunni.

Hvað sjáum við, heyrum og finnum þegar við stöldrum við úti í náttúrunni? Með því að samtvinna kvikmyndina, útiveru og skapandi samtal, gefst þátttakendum tækifæri til að staldra við, beina sjónum að nærumhverfinu og velta fyrir sér eigin tengslum við náttúruna. Þátttakendur fá rými til að koma upplifunum sínum í orð og spinna úr þeim sögur.

Börn verða að vera í fylgd með foreldrum eða forráðarmönnum

Vinnustofan byggir á hugmyndafræði um vistmiðaða heimsmynd og náttúrulæsi, sem leggur áherslu á að rækta tengsl okkar við lífríkið. Mikilvægt er að forráðamenn mæti vel undirbúnir og að þátttakendur klæði sig eftir veðri. Ef að veðurguðirnir eru ekki með okkur í liði þennan daginn þá mun smiðjan eiga sér stað inni í Norræna húsinu á bókasafninu.

Skráning fer fram með að senda tölvupóst á adalheidur@silfurbergproductions.com